Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fer fram á morgun, laugardaginn 3. september. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru hvattir til að taka þátt og móta þannig framtíðina.
Nánari upplýsingar um prófkjörið, frambjóðendurna og kjörstaði er að finna á https://xd.is/profkjor/nordvestur/
Prófkjörið er opið öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum 15 ára og eldri. Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem ganga í flokkinn á kjördegi skulu þó hafa náð 18 ára aldri 29. október n.k.
Kosið er á milli kl. 11 og 19.
Upplýsingar um kjörstaði:
| Akranes: | Smiðjuvellir 32 verslunarmiðstöð | |
| Borgarnes: | Hjálmaklettur (Menntaskóli Borgarfjarðar) | |
| Hvanneyri: | Skemman (Borgarbyggð sunnan Hvítár, Skorradalshreppur og Hvalfjarðarsveit) | |
| Ólafsvík: | Ennisbraut 1 | |
| Grundarfjörður: | Sjálfstæðishúsið Grundargötu 24 | |
| Stykkishólmur: | Hafnargata 9, skrifstofa Snæfells í Sæmundarpakkhúsi | |
| Búðardalur: | Í húsi Rauða krossins á Vesturbraut 12 | |
| Patreksfjörður: | Safnaðarheimili | |
| Ísafjörður: | Aðalstræti 20, Sjallinn | |
| Hólmavík: | Kópnesbraut 7, kvenfélagshúsið | |
| Hvammstangi: | Félagsheimili neðri hæð á kjördag | |
| Blönduós: | Húnabraut 13 (salur Búnaðars. Húnaþings og Stranda) | |
| Skagaströnd: | Bjarmanes kaffihús | |
| Sauðárkrókur: | Kaupvangstorg 1 |
Flokksmenn geta kosið annars staðar en þeir eiga að gera skv. lögheimili en þá kjósa þeir utankjörstaða.



