Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fer fram laugardaginn 10. september. Kosið er á milli kl. 9 og 18. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru hvattir til að taka þátt og móta þannig framtíðina.
Prófkjörið er opið öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum 15 ára og eldri. Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem ganga í flokkinn á kjördegi skulu þó hafa náð 18 ára aldri 29. október n.k.
Kjörstaðir eru opnir frá kl. 9:00 – 18:00 og eru þeir eftirfarandi:
Garðabær – Félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ, Garðatorgi 7.
Hafnarfjörður – Víðistaðaskóli, Hrauntungu 7
Kópavogur – Lindaskóli, Núpalind 7
Mosfellsbær og Kjósin – Félagsheimili sjálfstæðismanna í Kjarna, Þverholti 2
Seltjarnarnes – Félagsheimili sjálfstæðismanna, Austurströnd 3