Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, skólastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi, er oddviti D-listans á Dalvík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Á listanum er jafnt kynjahlutfall, 7 konur og 7 karlar með fjölbreytta starfsreynslu. Þórunn Andrésdóttir skipar annað sætið og Valdemar Þór Viðarsson það þriðja. Björgvin Gunnlaugsson, fyrrverandi skipstjóri, skipar heiðurssætið.
Listinn í heild sinni:
- Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, skólastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi
- Þórunn Andrésdóttir, móttökuritari
- Valdemar Þór Viðarsson, sveitarstjórnarfulltrúi og ökukennari
- Sigríður Jódís Gunnarsdóttir, snyrtifræðingur og flugnemi
- Haukur Arnar Gunnarsson, viðskiptastjóri
- Eva Björg Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Júlíus Magnússon, sjómaður og matartæknir
- Birta Dís Jónsdóttir, verslunarmaður og nemi
- Garðar Már Garðarsson, nemi og knattspyrnumaður
- Dana Jóna Sveinsdóttir, húsmóðir
- Gunnar Eiríksson, aðstoðarverkstjóri
- Rúna Kristín Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur og launafulltrúi
- Guðbjörg Anna Óladóttir, verslunarmaður
- Björgvin Gunnlaugsson, fv. skipstjóri og lífeyrisþegi