Sjálfstæðisflokkurinn tekur virkan þátt í ýmsu alþjóðasamstarfi. Flokkurinn tekur bæði þátt í samstarfi flokkahópa sem og í tvíhliða samstarfi við ýmsa systurflokka svo sem íhaldsflokka Bretlands, Noregs, Danmerkur og Færeyja, CDU í Þýskalandi o.fl.
Meðal helstu flokkahópa sem Sjálfstæðisflokkurinn tekur þátt í er Flokkahópur hægrimanna í norrænu samstarfi.
Flokkahópur hægrimanna í norrænu samstarfi
Auk Sjálfstæðisflokksins eiga aðild að samstarfinu sjö íhaldsflokkar á Norðurlöndum. Flokkarnir eru: Danski Íhaldsflokkurinn, Fólkaflokkurinn í Færeyjum, Hægriflokkurinn í Noregi, Moderaterna í Svíþjóð, Moderaterna á Álandseyjum, Óháði flokkurinn á Álandseyjum og Kokoomus í Finnlandi.
Samstarfið fer að mestu fram á vettvangi Norðurlandaráðs en þó starfar hópurinn jafnframt utan þess. Flokkarnir vinna að framgangi sameiginlegra hugsjóna innan norræns samstarfs og skipuleggja sig á vettvangi flokkahópsins. Hér má nálgast frekari upplýsingar um flokkahópinn.