Æðsta forysta Sjálfstæðisflokksins er skipuð formanni, varaformanni og ritara flokksins sem kosin eru á landsfundi hverju sinni.
Formaður Sjálfstæðisflokksins er Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Hann var kjörinn formaður flokksins á landsfundi árið 2009.
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Hún var kjörin varaformaður flokksins á landsfundi árið 2018.
Ritari Sjálfstæðisflokksins er Jón Gunnarsson, alþingismaður. Hann var kjörinn ritari flokksins á flokksráðsfundi 14. september 2019.
- Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins: Þórður Þórarinsson
- Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins: Birgir Ármannsson
- Formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins: Jens Garðar Helgason
- Formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna: Halldór Blöndal
- Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna: Halla Sigrún Mathiesen
- Formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna: Vala Pálsdóttir
- Formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins: Jón Ragnar Ríkarðsson
- Formaður Varðar, fulltrúaráðsins í Reykjavík: Jón Karl Ólafsson
- Formaður Kjördæmisráðs Suðvesturkjördæmis: Lovísa Árnadóttir
- Formaður Kjördæmisráðs Suðurkjördæmis: Ingvar P. Guðbjörnsson
- Formaður Kjördæmisráðs Norðausturkjördæmis: Kristinn Frímann Árnason
- Formaður Kjördæmisráðs Norðvesturkjördæmis: Sigríður Ólafsdóttir