Hrunamannahreppur er 38. stærsta sveitarfélag landsins og er hluti af Suðurkjördæmi. Þar bjuggu 774 íbúar þann 1. janúar 2018. D-listi sjálfstæðismanna og óháðra fékk 215 atkvæði í sveitarstjórnarkosningunum 2018, eða 47,67% atkvæða og hlut 2 sveitarstjórnarfulltrúa kjörna af 5. Þetta var í fyrsta skipti sem sjálfstæðismenn standa að lista í Hrunamannahreppi.
Facebooksíðu framboðsins má finna hér.
Sveitarstjórnarfulltrúar (netföng og trúnaðarstörf má finna með því að smella á viðkomandi):
- Jón Bjarnason, búfræðingur, verktaki, ferða- og sauðfjárbóndi
- Bjarney Vignisdóttir, bóndi, hjúkrunarfræðingur, garðyrkjufræðingur
Varamenn:
- Sigfríð Lárusdóttir, Hvammi 1, sjúkraþjálfari
- Rúnar Guðjónsson, Melum Flúðum, útskriftarnemi í ML og formaður Ungmennaráðs Suðurlands