Vesturbyggð er 32. stærsta sveitarfélag landsins og hluti af Norðvesturkjördæmi. Þar bjuggu 1.024 íbúar þann 1. janúar 2018. D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra hlaut 251 atkvæði í sveitarstjórnarkosninunum 2018 eða 45,72% atkvæða. Flokkurinn á 3 bæjarfulltrúa af 7 og situr í minnihluta.
Facebooksíðu framboðsins má finna hér.
Bæjarfulltrúar:
- Friðbjörg Matthíasdóttir, viðskiptafræðingur, Bíldudal.
- Ásgeir Sveinsson, bóndi, Patreksfirði.
- Magnús Jónsson, skipstjóri, Patreksfirði.
Varabæjarfulltrúar:
- Guðrún Eggertsdóttir, fjármálastjóri, Patreksfirði.
- Gísli Ægir Ágústsson, kaupmaður, Bíldudal.
- Halldór Traustason, málari, Patreksfirði.